04.12.2023
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ásamt liðsfélögum sínum í U20 landsliðinu mæta liði Austurríkis í dag kl. 16 í umspilsleik um hvort liðið fær sæti á HM U20.
02.12.2023
Í gær voru afhentir styrkir Menningar- og viðurkenningarsjóðs KEA, eins og venjan er á fullveldisdeginum 1. desember.
01.12.2023
A-landsliðið leikur í kvöld mikilvægan landsleik við Wales. Okkar kona, Sandra María Jessen, er að sjálfsögðu í hópnum og klár í slaginn í kvöld. Við heyrðum í henni hljóðið á leikdegi.
01.12.2023
Sandra María Jessen er þessa dagana á ferð og flugi með A-landsliði Íslands. Fram undan eru tveir síðustu leikirnir í Þjóðadeildinni. Íslenska liðið mætir liði Wales ytra í kvöld og svo Dönum í Kaupmannahöfn þriðjudaginn 5. desember.
29.11.2023
Þór/KA á fjóra fulltrúa sem taka þátt í æfingalandsleikjum með U20 og U18 landsliðunum gegn Svíum í dag og á föstudaginn.
22.11.2023
Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 landsliðs Íslands, hefur valið 18 leikmenn í hópinn sem mætir Austurríki í umspilsleik um sæti á HM U20 sem fram fer í Kolumbíu í ágúst/september á næsta ári.
18.11.2023
Þrjár frá Þór/KA voru í byrjunarliði U15 landsliðs Íslands sem mætti Spánverjum í dag í UEFA Development móti sem fram fer í Portúgal.
Bríet Kolbrún Hinriksdóttir stóð í markinu allan tímann og þær Aníta Ingvarsdóttir og Ragnheiður Sara Steindórsdóttir voru einnig í byrjunarliðinu.
Leiknum lauk með 3-3 jafntefli. Ísland komst yfir eftir tæplega hálftíma leik, en Spánverjar jöfnuðu stuttu síðar. Staðan 1-1 í leikhléi.
Spánverjar náðu forystunni snemma í síðari hálfleik, en Ísland jafnaði nokkrum mínútum síðar. Ísland komst svo yfir þegar rúmar tíu mínútur voru eftir, en Spánverjar jönfuðu jafnharðan.
Liðið leikur annan leik sinn á mánudag og mætir þá gestgjöfum Portúgala.
17.11.2023
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur valið leikmannahópinn fyrir tvo síðustu leikina í Þjóðadeild UEFA. Ísland mætir Wales á útivelli 1. desember og Danmörku, einnig á útivelli, 5. desember.
14.11.2023
Vissir þú að með því að styrkja Þór/KA getur þú fengið skattaafslátt? Skoðaðu dæmið. Lágmarksupphæð styrks til að fá lækkun á tekjuskattsstofni er 10.000 krónur, en hámark 350.000 krónur - eða 700.000 krónur hjá hjónum.
13.11.2023
Þór/KA hefur átt marga fulltrúa í landsliðsverkefnum að undanförnu, eins og oftast áður.