Ögurstund hjá U20 landsliðinu

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ásamt liðsfélögum sínum í U20 landsliðinu mæta liði Austurríkis í dag kl. 16 í umspilsleik um hvort liðið fær sæti á HM U20.

Ísland og Austurríki enduðu bæði í 3. sæti í sínum riðlum í lokakeppni EM U19 í sumar og fá því tækifæri til að vinna sér sæti á lokamóti HM sem hefst 31. ágúst. Leikurinn í dag fer fram í Salou rétt utan við Barcelona.

Sjónvarp Símans mun sýna leikinn beint.