U19: Tvær frá Þór/KA í hópi fyrir æfingaleiki

Þór/KA á tvo fulltrúa í nýjasta landsliðshópi U19, Bríeti Jóhannsdóttur og Hildi Önnu Birgisdóttur. Hvorug þeirra á að baki landsleiki með yngri landsliðunum.

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U19, hefur valið hópinn sem tekur þátt í tveimur vináttuleikjum í júli og var hópurinn tilkynntur í morgun. Ísland mætir Norei 13. júlí og Svíþjóð 15. júlí.