Þór/KA og Íslandsbanki endurnýja samstarfssamning

Dóra Sif Sigtryggsdóttir og Jón Birgir Guðmundsson handsala samninginn.
Dóra Sif Sigtryggsdóttir og Jón Birgir Guðmundsson handsala samninginn.

Þór/KA og Íslandsbanki hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli. Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, og Jón Birgir Guðmundsson, útibússtjóri Íslandsbanka á Akureyri, undirrituðu samninginn í Hamri í gær.

Þór/KA og Íslandsbanki hafa átt farsælt samstarf undanfarin ár og fagnar félagið því að eiga áfram öflugan samstarfsaðila eins og Íslandsbanki er.