Karfan er tóm.
Næstsíðasta umferðin í Bestu deild kvenna, fyrir tvískiptingu, verðu leikinn í dag. Þór/KA-stelpur fara á Selfoss.
Leikur liðanna hefst kl. 14. Fyrir leikinn er Þór/KA í 6. sæti deildarinnar með 22 stig, en Selfyssingar eru á botni deildarinnar með 11 stig. Þessi lið hafa mæst 21 sinni í efstu deild Íslandsmótsins og Þór/KA oftar haft betur.
Þór/KA vann fyrri leik liðanna í deildinni í sumar, 3-0. Selfoss vann hins vegar báðar viðureignir þessara liða í Bestu deildinni í fyrrasumar.