Karfan er tóm.
Fyrsti leikur okkar í Lengjubikarnum þetta árið verður í Boganum laugardaginn 12. febrúar og hefst kl. 16.
Svo skemmtilega vill til að það eru aðeins sex dagar á milli leikja okkar gegn Keflvíkingum. Eins og fólki er kannski í fersku minni mættust liðin í Faxaflóamótinu síðastliðinn sunnudag og nú mætast þau aftur, í fyrstu umferð Lengjubikarsins.
Aðgangur: 1.000 krónur fyrir fullorðna, frítt fyrir börn.
Miðasala í Stubbi og við dyr.
Streymi: thorsport.is/tv - kostar 1.000 krónur.
Munið grímurnar.
Staðan og leikir: Lengjubikarinn - A-deild - Riðill 2.