Sonja Björg og Amalía að loknum fyrsta leik sínum með Völsungi á dögunum.
Una Móeiður Hlynsdóttir hefur bæst í hóp þeirra leikmanna sem við höfum lánað til Völsungs. Liðið er komið í úrstlitaleik C-deildar Lengjubikarsins.
Við sögðum frá því nýlega að tvær úr okkar hópi hafi verið lánaðar til Völsungs og nú hefur sú þriðja bæst í hópinn, Una Móeiður Hlynsdóttir (2005) er komin í þingeyska boltann ásamt þeim Amalíu Árnadóttur (2006) og Sonju Björgu Sigurðardóttur (2006).
Þær voru allar í byrjunarliði Völsungs í dag þegar liðið mætti Gróttu í undanúrslitum C-deildar Lengjubikarsins. Skemmst er frá því að segja að Sonja Björg skoraði öll þrjú mörk Völsungs í 3-2 sigri og er liðið því komið í úrslitaleik C-deildarinnar þar sem þær mæta ÍA næstkomandi föstudag.