Sandra María Jessen valin íþróttakona Þórs

Sandra María Jessen hampar hér í þriðja sinn á þremur árum verðlaunagrip sem gefinn er af Ragnari Sv…
Sandra María Jessen hampar hér í þriðja sinn á þremur árum verðlaunagrip sem gefinn er af Ragnari Sverrissyni í JMJ.
- - -

Sandra María Jessen heldur áfram að sanka að sér verðlaunum og var fyrr í dag útnefnd íþróttakona Þórs í verðlaunahófi félagsins í Hamri. Við sama tækifæri var Alfreð Leó Svansson rafíþróttamaður kjörinn íþróttakarl Þórs. 

Sandra María var í haust verðlaunuð sem besti leikmaður liðsins árið 2024, kosin af samherjum. Þá var hún einnig valin besti leikmaður Bestu deildarinnar, kosin af leikmönnum deildarinnar, og verðlaunuð sem markahæsta knattspyrnukona Bestu deildarinnar. Hún deildi titlinum íþróttakona Þórs í fyrra með körfuboltakonunni Maddie Sutton.

Sandra María var svo útnefnd íþróttakona Akureyrar í fyrsta skipti í framhaldinu á verðlaunahátíð ÍBA í janúar í fyrra. Nú er hún útnefnd íþróttakona Þórs í þriðja skiptið í röð, en hún hefur hlotið þennan titil öll árin eftir að hún sneri aftur heim úr atvinnumennsku og samdi við Þór/KA. Hún verður því enn og aftur í kjöri fyrir valið á íþróttakonu Akureyrar 2024 sem tilkynnt verður síðar í mánuðinum. Sandra María varð fjórða knattspyrnukonan úr okkar röðum sem hlotið hefur titilinn Íþróttakona Akureyrar þegar hún fékk þá útnefningu í janúar í fyrra fyrir árið 2023.

Íþróttakonur Akureyrar úr röðum Þórs/KA:

  • Sandra María Jessen (2023)
  • Stephany Mayor (2017)
  • Arna Sif Ásgrímsdóttir (2012)
  • Rakel Hönnudóttir (2008)

Knattspyrnukona úr Þór/KA (Þór/KA/KS) var fyrst valin íþróttakona Þórs árið 2002 þegar Ásta Árnadóttir varð fyrir valinu. Konur úr Þór/KA hafa hlotið titilinn íþróttakona Þórs á hverju ári frá 2014, að frátöldu heimsfaraldursárinu 2020 þegar sjálfboðaliðinn fékk þessa útnefningu. Sandra María deildi svo titlinum með Maddie Sutton í fyrra, eins og áður kom fram. Samtals hafa sex úr Þór/KA hlotið titilinn íþróttakona Þórs í 14 skipti. Arna Sif Ásgrímsdóttir hefur oftast verið valin, fimm sinnum, Sandra María er nú valin í þriðja skiptið. 

Íþróttakonur Þórs úr röðum Þórs/KA:


Sandra María ásamt foreldrum sínum og dóttur. Rainer Jessen, Sandra María, Ella Ylví Küster og Jóhanna Jessen. 


Sandra María með verðlaunin eftir sumarið, Flugleiðahornið svokallaða og verðlaun frá KSÍ sem besti leikmaður Bestu deildarinnar og Nike-gullskóinn sem markadrottning. Mynd: Skapti Hallgrímsson - akureyri.net.


Sandra María Jessen ásamt liðsfélögum sínum, þeim sem hlutu verðlaun í meistaraflokki á lokahófi félagsins í haust. Frá vinstri: Bríet Jóhannsdóttir (efnilegust), Sandra María Jessen (besti leikmaður), Margrét Árnadóttir (leikmaður leikmannanna) og Hulda Ósk Jónsdóttir (Kollubikarinn). 

Í tilnefningu félagsins fyrir val aðalstjórnar Þórs á íþróttakonu félagsins segir: 

Sandra María var algjör lykilleikmaður í frábærum árangri Þórs/KA í mótum ársins. Hún er fyrirliði liðsins, reyndasti leikmaður þess og skoraði langflest mörk allra leikmanna. Hún er fyrirmynd annarra knattspyrnukvenna, yngri sem eldri, innan vallar sem utan. Hún var valin besti leikmaður liðsins á lokahófi félagsins í október. Hún var andstæðingum erfið og sínu eigin liði ómetanleg, skoraði ógrynni af mörkum í öllum mótum og leiddi lið áfram með baráttu, útsjónarsemi og frábærum tilþrifum, liði sem náði í undanúrslit í Lengjubikar og Mjólkurbikar, og endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar.

Samtals spilaði Sandra María 47 leiki á árinu, þar af 32 keppnisleiki í KSÍ-mótum, níu landsleiki og sex leiki í æfingamóti á undirbúningstímabilinu, auk æfingaleikja. Sandra María tók þátt í öllum leikjum Þórs/KA í öllum KSÍ-mótunum og var í byrjunarliði í öllum þeirra nema einum. Í einum bikarleik kom hún inn sem varamaður eftir leikhlé og skoraði sigurmarkið skömmu síðar. Hún spilaði 23 leiki í Bestu deildinni, þrjá í Mjólkurbikarnum og sex í Lengjubikarnum, auk sex leikja í Kjarnafæðimótinu, æfingamóti fyrir tímabilið.

Sandra María var valin besti leikmaður Bestu deildarinnar af leikmönnum deildarinnar og var að auki markadrottning deildarinnar. Hún skoraði alls 33 mörk í leikjum Þórs/KA í KSÍ-mótunum, 22 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni, tvö mörk í þremur leikjum í Mjólkurbikarkeppninni og níu mörk í sex leikjum í Lengjubikarnum. Að auki átti hún tíu stoðsendingar í þessum 32 leikjum. Þá kom hún við sögu í níu landsleikjum, í byrjunarliði í mörgum þeirra.


Sandra María ásamt ömmu og afa Baldvins Þórs Magnússonar þegar kjör á íþróttakarli og íþróttakonu Akureyrar var kunngjört í janúar í fyrra. Mynd: Þórir Ó. Tryggvason.


Sandra María Jessen var útnefnd íþróttakona Akureyrar árið 2023. 


Sandra María deildi titlinum íþróttakona Þórs fyrir árið 2023 með körfuboltakonunni Maddie Sutton. Mynd: Páll Jóhannesson.


Sandra María ásamt Ragnari Sverrissyni, fulltrúa JMJ, sem er gefandi verðlaunagripsins, þegar hún var kjörin íþróttakona Þórs 2022. Mynd: Skapti Hallgrímsson - akureyri.net.