Karfan er tóm.
Sandra María Jessen er íþróttakona Akureyrar árið 2024, annað árið í röð. Kjöri íþróttafólks Akureyrar 2024 var lýst á íþróttahátíð Íþróttabandalags Akureyrar og Akureyrarbæjar í Hofi síðdegis í gær.
Þór/KA hefur áður átt fulltrúa í þessari sömu stöðu, en Sandra María er sú fyrsta úr okkar röðum sem vinnur þennan titil tvisvar. Áður höfðu Stephany Mayor, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Rakel Hönnudóttir verið kjörnar. Frá og með 2016 var tekin upp sú regla að heiðra íþróttakonu og íþróttakarl Akureyrar, en 1979-2015 var alltaf einn einstaklingur valinn og hlaut þar með titilinn íþróttamaður Akureyrar.
Á athöfninni fengu þau aðildarfélög sem áttu Íslandsmeistara og landsliðsfólk á liðnu ári viðurkenningar og heiðursviðurkenningar. Á meðal Íslandsmeistara voru að sjálfsögðu liðin okkar í 2. flokki A-deild og 3. flokki í keppni B-liða, sem bæði unnu Íslandsmeistaratitla.
Við kjör á íþróttafólki Þórs og síðan íþróttafólki Akureyrar var eftirfarandi texti um Söndru Maríu og afrek hennar á árinu lagður til grundvallar.
Sandra María var algjör lykilleikmaður í frábærum árangri Þórs/KA í mótum ársins. Hún er fyrirliði liðsins, reyndasti leikmaður þess og skoraði langflest mörk allra leikmanna. Hún er fyrirmynd annarra knattspyrnukvenna, yngri sem eldri, innan vallar sem utan. Hún var valin besti leikmaður liðsins á lokahófi félagsins í október. Hún var andstæðingum erfið og sínu eigin liði ómetanleg, skoraði ógrynni af mörkum í öllum mótum og leiddi lið áfram með baráttu, útsjónarsemi og frábærum tilþrifum, liði sem náði í undanúrslit í Lengjubikar og Mjólkurbikar, og endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar.
Samtals spilaði Sandra María 47 leiki á árinu, þar af 32 keppnisleiki í KSÍ-mótum, níu landsleiki og sex leiki í æfingamóti á undirbúningstímabilinu, auk æfingaleikja. Sandra María tók þátt í öllum leikjum Þórs/KA í öllum KSÍ-mótunum og var í byrjunarliði í öllum þeirra nema einum. Í einum bikarleik kom hún inn sem varamaður eftir leikhlé og skoraði sigurmarkið skömmu síðar. Hún spilaði 23 leiki í Bestu deildinni, þrjá í Mjólkurbikarnum og sex í Lengjubikarnum, auk sex leikja í Kjarnafæðimótinu, æfingamóti fyrir tímabilið.
Sandra María var valin besti leikmaður Bestu deildarinnar af leikmönnum deildarinnar og var að auki markadrottning deildarinnar. Hún skoraði alls 33 mörk í leikjum Þórs/KA í KSÍ-mótunum, 22 mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni, tvö mörk í þremur leikjum í Mjólkurbikarkeppninni og níu mörk í sex leikjum í Lengjubikarnum. Að auki átti hún tíu stoðsendingar í þessum 32 leikjum. Þá kom hún við sögu í níu landsleikjum, í byrjunarliði í mörgum þeirra.
Við þetta mætti bæta ýmsu af afrekalista Söndru Maríu á árinu 2024. Við höfum til dæmis ekki farið skipulega yfir val einstakra fjölmiðla á liði ársins og bestu leikmönnum, en þar er hún eflaust í fararbroddi hjá öllum fjölmiðlum.
Ofan á titilinn markadrottning og öll þau mörk sem hún skoraði í öllum keppnum er afar athyglivert að hún skoraði að minnsta kosti eitt mark gegn öllum andstæðingum Þórs/KA í Bestu deildinni á árinu og tveimur af þremur mótherjum liðsins í Mjólkurbikarkeppninni, en í eina bikarleiknum sem hún skoraði ekki átti hún tvær stoðsendingar.
Hér mætti lengi áfram telja, en upp úr stendur að Sandra María Jessen er frábær íþróttakona sem leggur sig alla fram í öllum verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur í tengslum við íþrótt sína, innan vallar og utan, leggur mikla áherslu á heilbrigt líferni og að vera í toppformi. Þá má ekki gleyma því að hún hefur verið lykilleikmaður í okkar liði frá því að hún kom heim úr atvinnumennsku og eftir að hafa orðið móðir fyrir rúmum þremur árum.