Karfan er tóm.
Nú eru innan við 50 dagar í það að keppni hefjist í Bestu deildinni og því orðið tímabært að ná sér í árskort á heimaleiki liðsins í sumar.
Nokkuð er síðan leikjadagskráin var staðfest og birt. Fyrstu tveir leikir okkar í vor eru útileikir þannig að enn eru tæpir 60 dagar í fyrsta heimaleikinn þegar við fáum Þrótt í heimsókn fimmtudaginn 2. maí.
Sala árskorta er hafin í Stubbi. Kortin kosta 20.000 krónur og er innifalinn kaffibolli í leikhléi.
Fyrir þau sem eru nú þegar með Stubb-appið í símanum er nóg að smella á myndina hér að neðan til að fara beint og kaupa árskortið.
Heimaleikirnir í Bestu deildinni í sumar geta orðið á bilinu 10-12, en það fer eftir því hvar liðið er statt þegar hefðbundinni deildarkeppni lýkur 1. september.
Þór/KA - heimaleikir í Bestu deildinni 2024