Karfan er tóm.
Þór/KA hefur leik í Lengjubikarkeppninni á laugardag með leik gegn ÍBV í Akraneshöllinni.
Í A-deild kvenna eru 12 lið sem skipt er í tvo riðla. Tvö efstu liðin fara í undanúrslit. Þór/KA leikur í riðli 2 ásamt ÍBV, Víkingi, Þrótti, FH og Stjörnunni. Liðið spilar þrjá leiki í Boganum, einn á Akranesi og einn í Hafnarfirði.
Undanúrslit A-deildar kvenna eru á dagskrá laugardaginn 23. mars og úrslitaleikur miðvikudaginn 27. mars.