Karfan er tóm.
Bríet Jóhannsdóttir hefur verið valin í hóp U19 landsliðsins sem tekur þátt í undanriðli fyrir EM 2025 í lok mánaðarins.
Íslenska landsliðið er í riðli 6 ásamt Spánverjum, Belgum og Norður-Írum. Riðillinn verður spilaður á Spáni 26. nóvember til 4. desember, en landsliðið kemur einnig saman til æfinga 22.-23. og 25. nóvember hér heima.
Þjálfari U19 landsliðsins er Þórður Þórðarson.
Leikir Íslands
Þær Bríet Fjóla Bjarnadóttir og Hafdís Nína Elmarsdóttir hafa verið valdar í landsliðshóp U15 sem tekur þátt í UEFA Development Tournament í Englandi 20.-26. nóvember. Hópurinn kemur saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ 18. og 19. nóvember.
Þjálfari U15 landsliðsins er Margrét Magnúsdóttir.