Kollubikarinn 2024: Hulda Ósk Jónsdóttir

Hulda Ósk Jónsdóttir með Kollubikarinn. Mynd: Skapti Hallgrímsson - akureyri.net.
Hulda Ósk Jónsdóttir með Kollubikarinn. Mynd: Skapti Hallgrímsson - akureyri.net.

Hulda Ósk Jónsdóttir er handhafi Kollubikarsins 2024.

Kollubikarinn var veittur í níunda sinn á lokahófi Þórs/KA á laugardagskvöldið. Gripurinn er veittur í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur, fyrrum leikmanns og stjórnarkonu í Þór/KA. Stjórn Þórs/KA ákveður hver hlýtur Kollubikarinn. 

Við val á þeim leikmanni sem hlýtur Kollubikarinn eru hafðir til hliðsjónar eiginleikar sem prýddu Kollu sjálfa, áræðni, harka og dugnaður, svo einhverjir séu nefndir. Kolbrún starfaði lengi í kvennaráði (stjórn) Þórs/KA, en hún lést þann 6. júní 2016.

Við afhendingu Kollubikarsins hefur skapast sú hefð að lesin er upp umsögn liðsfélaga um þann leikmann sem fær bikarinn. Liðsfélagi lýsir Huldu Ósk með eftirfarandi orðum:

Liðsfélagi lýsir Huldu Ósk með eftirfarandi orðum:

  • Það fer ekki alltaf mikið fyrir Huldu Ósk en hún leynir á sér. Hún kemur ekki bara andstæðingum sínum stöðugt á óvart heldur samherjum og þjálfurum líka. Húmoristi og gleðigjafi en veit nákvæmlega hvenær alvaran tekur við og allir þurfa að hafa fókus. Hún er til staðar fyrir liðsfélagana bæði innan og utan vallar og það er gott að geta leitað til hennar. Hún leggur sig alltaf fram fyrir liðið sitt og ekki síst fyrir liðsfélagana. Ég held að það sé alveg óhætt að fullyrða að það væru öll lið talsvert betri ef þau hefðu eina Huldu Ósk í sínu liði.

Hulda Ósk í leik gegn Fylki í sumar, komin framhjá varnarmanni, einu sinni sem oftar. Mynd: Þórir Ó. Tryggvason.

Sjálfboðaliði úr röðum félagsins lýsir Huldu Ósk svo:

  • Hún er einstaklega góð manneskja með hjartað á réttum stað, góðhjartaður húmoristi. Einmitt þessir eiginleikar gera það svo skemmtilegt að vinna með henni og fyrir hana, jafnvel þótt hún eigi það til að týna hlutum, eins og til dæmis æfingafatnaði. En hún er líka hörkutól og tekur engu sem sjálfsögðum hlut enda hefur hún þurft að berjast og leggja mikið á sig til að vera á þeim stað sem hún er á í dag.

Handhafar Kollubikarsins frá upphafi:

2016: Karen Nóadóttir
2017: Sandra María Jessen
2018: Arna Sif Ásgrímsdóttir
2019: Lára Einarsdóttir
2020: Heiða Ragney Viðarsdóttir
2021: Harpa Jóhannsdóttir
2022: Hulda Björg Hannesdóttir
2023: Agnes Birta Stefánsdóttir
2024: Hulda Ósk Jónsdóttir