Karfan er tóm.
Það er nóg að gera hjá yngra liðinu okkar þessa dagana. Eftir að hafa mætt hinu Þór/KA-liðinu á föstudagskvöld er nú komið að öðrum leik helgarinnar hjá Þór/KA2 gegn Austfirðingum í FHL. Leikurinn verður í Boganum og hefst kl. 13.
Búast má við skemmtilegum leik í Boganum, okkar frísku og efnilegu stelpur mæta væntanlega til leiks af hörku og með sigurvilja eftir að hafa tapað fyrir eldra liðinu okkar á föstudagskvöldið. Þór/KA2 hefur nú spilað tvo leiki í mótinu, tapaði fyrst naumlega fyrir liði Tindastóls og svo fyrir Þór/KA á föstudag. FHL hefur spilað einn leik í mótinu og beið ósigur gegn Tindastóli.