Karfan er tóm.
Þór/KA mætir liði Völsungs í öðrum leik sínum í Kjarnafæðimótinu í dag. Leikurinn fer fram í Boganum og hefst kl. 17.
Þór/KA vann fyrsta leik sinn í mótinu þegar stelpurnar mættu liði FHL, eða blöndu af FHL og Einherja, um liðna helgi. Úrslitin urðu 7-0.
Völsungur mætti Tindastóli daginn áður og laut þar í lægra haldi, lokatölur 0-2.
Það má reyndar búast við mörgum Þór/KA-stelpum á grasinu í dag þar sem leikmenn úr Þór/KA2 verða væntanlega lánaðir Húsvíkingum í þessum leik, eins og í leiknum gegn Tindastóli fyrir rúmri viku.
Kjarnafæðimótið - kvennadeild (kdn.is)