Karfan er tóm.
Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær bjóða íbúum Akureyrar til íþróttahátíðar í Hofi í dag þar sem hápunkturinn verður þegar kjöri íþróttafólks Akureyrar 2023 verður lýst.
Þetta verður í 45. sinn sem íþróttafólk Akureyrar er heiðrað. Athöfnin er opin öllum. Húsið verður opnað kl. 17 en athöfnin hefst kl. 17:30.
ÍBA hefur birt lista yfir tíu efstu konur og tíu efstu karla í kjörinu. Sandra María Jessen, sem deilir titlinum íþróttakona Þórs er að sjálfsögðu á listanum yfir tíu efstu í kjörinu á íþróttakonu Akureyrar.
Dagskrá hátíðar