Innbyrðis leikur okkar liða í Kjarnafæðimótinu

Liðin okkar tvö í Kjarnafæðimótinu, Þór/KA og Þór/KA2, mætast í Boganum í dag kl. 18.

Það hefur gengið nokkuð brösuglega að koma á leikjum í deildinni okkar í Kjarnafæðimótinu. Leikir gegn Völsungi hafa fallið niður og hefur Völsungur dregið lið sitt úr mótinu. Bæði liðin okkar hafa nú mætt Tindastóli, en bæði eiga eftir að mæta FHL. Áður en að þeim leikjum kemur fer fram innbyrðis leikur liðanna okkar. Hann er á dagskrá í dag, verður spilaður í Boganum og hefst kl. 18.

Þór/KA2 leikur svo aftur á sunnudag, en þá er áformað að FHL komi í heimsókn og mæti yngra liðinu okkar í Boganum. Sá leikur er á dagskrá kl. 13 á sunnudag. Sunnudaginn 2. febrúar er svo von á Austfirðingum aftur í Bogann þegar Þór/KA og FHL mætast.