Karfan er tóm.
Fyrirliðar allra liðanna í Bestu deild kvenna, Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, þar á meðal, hafa sent frá sér harðorða yfirlýsingu um vinnubrögð ÍTF.
Í yfirlýsingunni eru vinnubrögð ÍTF sögð í besta falli vera til skammar, þar sem ítrekað hafi komið upp atvik sem gera lítið úr kvennaknattspyrnu á Íslandi. Fyrirliðarnir benda á að áhersla ÍTF sé á Bestu deild karla, en ekki deildirnar tvær til jafns þrátt fyrir yfirlýsingar í þá veru að um eitt vörumerki sé að ræða.
Þá hafa fyrirliðarnir ákveðið að leikmenn muni ekki mæta til ÍTF á mánudaginn þar sem fyrirhugað var að taka upp markaðsefni fyrir komandi tímabil.
Hér er yfirlýsingin í heild:
„Í aðdraganda Bestu deildar kvenna hefur undirbúningur og vinnubrögð ÍTF verið í besta falli skammarleg. Ítrekað hafa komið upp atvik sem gera lítið úr kvennaknattspyrnu á Íslandi, og sem opinbera það að áhersla ÍTF er á Bestu deild karla, en ekki deildirnar tvær til jafns - þrátt fyrir yfirlýsingar ÍTF að um eitt vörumerki sé að ræða.
„Við hörmum það mjög að þetta sé staðan þegar svo stutt er í mót, og að enn eitt árið halli á kvennaknattspyrnuna á Íslandi. Við vonum að ÍTF sjái að sér og fari að sinna báðum deildum, eins og þeirra hlutverk sannarlega er.
Af þessum sökum höfum við tekið þá ákvörðun að leikmenn munu ekki mæta á mánudaginn til ÍTF þar sem áætlað var að taka upp markaðsefni fyrir komandi tímabil.
Við hvetjum alla til þess að mæta á leik Vals og Stjörnunnar á mánudaginn kemur og sýna þannig kvennaknattspyrnunni stuðning.
Fyrir hönd félaga í Bestu deild kvenna, fyrirliðar félaga í Bestu deild kvenna
Júlíana Sveinsdóttir, ÍBV
Kristrún Ýr Hólm, Keflavík
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, Þróttur
Anna María Baldursdóttir, Stjarnan
Ásta Eir Árnadóttir, Breiðablik
Bryndís Rut Haraldsdóttir, Tindastóll
Sandra María Jessen, Þór/KA
Elísa Viðarsdóttir, Valur
Unnur Dóra Bergsdóttir, Selfoss
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir, FH“