Karfan er tóm.
Þór/KA sigraði HK í sjötta og næstsíðasta leik sínum í 1. lotu A-riðils Íslandsmótsins í 3. flokki.
Leiknum lauk með 2-0 sigri og voru það þær Bríet Jóhannsdóttir og Ólína Helga Sigþórsdóttir sem skoruðu mörkin.
Þór/KA er áfram í toppsætinu, nú með 16 stig að loknum sex leikjum. Næst á eftir koma Haukar/KÁ með níu stig úr þremur leikjum, hafa unnið alla leiki sína til þessa. Haukar/KÁ eru einmitt það lið sem Þór/KA á eftir að mæta í þessari 1. lotu. Sá leikur er á dagskrá í Boganum laugardaginn 23. apríl.
Leikskýrslan á vef KSÍ.
Mótið - staða, úrslit leikjadagskrá - á vef KSÍ.
Markaskorarar dagsins: Bríet Jóhannsdóttir og Ólína Helga Sigþórsdóttir.