Besta deildin: Heimaleikur gegn Fylki

Þór/KA tekur á móti Fylki í 9. umferð Bestu deildarinnar í kvöld kl. 18. 

Með leiknum í kvöld lýkur fyrri hluta hefðbundinnar deildarkeppni, níu leikjum af 18 lokið og fram undan annar hringur gegn sömu liðum. 

Fyrir leikinn er Þór/KA í 3. sætinu með 18 stig úr átta leikjum. Fylkir er í 9. sæti með fimm stig. Taflan segir þó ekki alla söguna því Fylkisliðið hefur átt ágæta leiki. Í stuttu spjalli sem félagið birti á Instagram í gær sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson að búast mætti við erfiðum hörkuleik gegn Fylki. Liðið sé vel skipulagt og hættulegt og hafi verið inni í öllum leikjum sem þær hafa spilað. Meðal annars hafi liðin í efstu sætunum átt í brasi með Fylkisliðið. 

Félögin hafa mæst 28 sinnum í efstu deild og hefur Þór/KA unnið helming þeirra leikja, fjórðungur hefur endað með jafntefli og fjórðungur með sigri Fylkis. Síðast mættust þessi lið í efstu deild sumarið 2021. Þá varð markalaust jafntefli á Akureyri, en Þór/KA vann útileikinn 2-1. Að þeim leik loknum var ljóst að Fylkir félli í Lengjudeildina þar sem liðið spilaði í tvö ár, en er nú aftur í efstu deild.

Þór/KA og Fylkir mættust tvisvar á ári í efstu deild frá og með árinu 2006 til og með 2021, ef undanskilin eru árin 2013 og 2018. Áhugaverð tilviljun reyndar að bæði árin sem Þór/KA hefur orðið Íslandsmeistari féll Fylkisliðið sama ár. Þegar leitað er leikmanna sem spilað hafa fyrir bæði félögin kemur í ljós að engin knattspyrnukona hefur skipt beint úr Þór/KA í Fylki eða öfugt.

Meðal leikmanna sem spilað hafa fyrir bæði félögin eru Danka Podovac, Freydís Anna Jónsdóttir, Telma Ýr Unnsteinsdóttir og Laufey Björnsdóttir, sem spilaði 12 leiki fyrir Þór/KA/KS í Landsbankadeildinni 2004. Tvíburasystir Laufeyjar, Björk, spilaði einnig fyrir Fylki, en hún náði ekki að spila meistaraflokksleik með Þór/KA/KS. Eflaust hafa fleiri komið við sögu beggja liða enda ekki farið djúpt í leikmannalista liðinna ára til að finna þessar sem hér hafa verið nefndar. Þær Danka, Freydís Anna og Telma Ýr eru þær einu sem höfðu félagaskipti beint á milli þessara félaga. 

Upphitun verður með hefðbundnum hætti, grillið funheitt, borgararnir glóðvolgir, drykkirnir ískaldir og stelpurnar sjálfar sjóðheitar inni á vellinum eins og áður. Þjálfaraspjall um kl. 17:15, Jói í sófanum. 

Minnum einnig á fótboltamyndirnar sem eru til sölu í sjoppunni.