Karfan er tóm.
Þór/KA mætir Stjörnunni í Garðabænum í fyrstu umferð Bestu deildarinnar á morgun, miðvikudaginn 26. apríl, kl. 18.
Keppni í Bestu deildinni hefst í dag með þremur leikjum, en tveir leikir fara fram á morgun. Þór/KA fer í Garðabæinn og tekst á við lið Stjörnunnar í annað skiptið í þessum mánuði, en þessi lið mættust í úrslitaleik Lengjubikarsins í byrjun mánaðarins.
Þessi lið hafa mæst 36 sinnum í efstu deild, fyrst árið 2000 og svo aftur 2006 og á hverju ári síðan þá. Eins og sjá má á myndinni hér að neðan (skjáskot af ksi.is) hefur Stjarnan oftar haft betur.