Karfan er tóm.
Í dag verður tilkynnt hvaða íþróttafólk hlýtur sæmdarheitin íþróttakona og -karl Akureyrar árið 2024. Sandra María Jessen er á meðal tíu efstu í kjörinu, en hún var kjörin íþróttakona Akureyrar fyrir árið 2023.
Hátíðin verður í Hofi og er opin öllum. Húsið verður opnað kl. 17 og hátíðin hefst kl. 17:30.
Nánari upplýsingar um dagskrá og tíu efstu í hvorum flokki má finna í frétt á vef ÍBA.
Hátíðinni verður streymt á YouTube-rás Menningarfélags Akureyrar.