Árskortin eru komin í sölu

Árskort: 15.000 - níu heimaleikir í Bestu deildinni og tvisvar sinnum borgari og drykkur innifalið.
Árskort: 15.000 - níu heimaleikir í Bestu deildinni og tvisvar sinnum borgari og drykkur innifalið.

 

Nú styttist óðum í upphaf Íslandsmótsins og sala árskorta því hafin.

Eins og undanfarin ár munu leikmenn liðsins taka á móti pöntunum á árskortum og greiðslu fyrir þau. Afhending kortanna verður auglýst fljótlega, en gera má ráð fyrir að þau verði klár ekki seinna en þegar félagið heldur leikmannakynningu fyrir fyrsta heimaleik. Staður og stund fyrir leikmannakynningu verður auglýst fljótlega.

Við eigum eftir að fjalla nánar um leikmannahópinn og mótin framundan, en bara til upprifjunar þá er fyrsti leikur okkar er gegn Breiðabliki á útivelli miðvikudaginn 27. apríl. Fyrsti heimaleikur verður gegn Val þriðjudaginn 3. maí.