Aðalfundur fimmtudaginn 7. apríl

 

Boðað hefur verið til ársfundar fyrir Þór/KA og fer hann fram í Hamri, félagsheimili Þórs, fimmtudaginn 7. apríl kl. 17.

Á fundinum fer stjórn Þórs/KA yfir starfsemina á liðnu ári, breytingar verða í stjórninni og að sjálfsögðu opið fyrir fundargesti að tjá sig um málefni félagsins.

Áhugafólk um kvennaknattspyrnu á akureyri, stuðningsfólk félagsins, leikmenn aðstandendur eru hvött til að mæta á fundinn og kynnast starfsemi félagsins.

Hefðbundin aðalfundardagskrá.