Um 34 ára sögu sameiginlegs kvennaliðs Akureyrarfélaganna í knattspyrnu virðist nú lokið með slitum á samstarfinu um Þór/KA. Saga félagsins verður ekki rakin hér í stuttu máli, en til fróðleiks eru hér teknir saman nokkrir molar í máli og tölum. Brot úr sögunni frá því í maí 1993 þegar fyrst var leikið í Íslandsmóti undir merkjum ÍBA. Konurnar og knattspyrnan á Akureyri eiga sér lengri sögu, fyrir tíma ÍBA liðsins, sem verður mögulega skoðuð síðar á þessum vettvangi eða öðrum.
Erfiðu og lærdómsríkutímabili lauk þegar Þór/KA vann Víking á útivelli í 21. umferð Bestu deildarinnar, lokaumferð neðri hlutans, og tryggði sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni. Mánuði seinna má segja að ekki aðeins hafi tímabilinu lokið heldur sögu félagsins einnig þegar tilkynnt var um slit á samstarfinu. Lokakafli sögunnar, tímabilið 2026, verður rifjaður upp hér í máli, myndum og fróðleiksmolum.
Sjálfboðaliðar halda starfi íþróttafélaga og íþróttaliða gangandi. Án þeirra myndi allt stöðvast. Sjálfboðaliða starf og þáttur þess í rekstri Þórs/KA eins og annarra íþróttaliða og -félaga verður seint metinn til fjár og líklega óvinnandi vegur að mæla það í krónum og aurum.
Knattspyrna er leikur án fordóma. Heiðarleg framkoma utan vallar sem innan leiðir af sér betri og skemmtilegri knattspyrnu. Við hvetjum okkar lið með jákvæðum og uppbyggilegum hætti og berum virðingu fyrir öllum þátttakendum leiksins.
Þór/KA tefldi fram einu liði í Íslandsmóti og bikarkeppni U20 (2. flokkur) í samvinnu við Völsung og Dalvík undir heitinu Þór/KA/Dalv/Völ. Liðið vann til silfurverðlauna í báðum mótunum.